Tölvuþjónusta við nemendafélög

Nemendafélögum stendur til boða eftirfarandi þjónusta án endurgjalds:

1. Mail alias
Áframsending á tölvupósti á eitt eða fleiri notendanöfn t.d. póstur sem
berst á mail aliasinn nemendafelag@hi.is er þá sendur áfram á
notendanafnið notendanafn@hi.is

2. Vefsvæði á vefþjóni.
Veffangið er þá http://nemendafelog.hi.is/heiti nemendafelags/
Nemendafélagið getur fengið aðgang að vefumsjónarkerfinu WordPress.

Öll önnur tölvuþjónusta RHÍ stendur nemendafélögum til boða gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá RHÍ hverju sinni, en með eftirfarandi skilyrði þó:

Greiðandinn verður að vera skipulagseining og verkefni í bókhaldi HÍ, þ.e.a.s. deild, skor eða annar aðili innan HÍ sem hefur bókhaldsnúmer verður að fallast á að greiða fyrir tölvuþjónustu við nemendafélagið.
Viðkomandi aðili innan HÍ sækir þá um þjónustuna í Uglu fyrir nemendafélagið og skuldbindur sig þar með til að greiða kostnaðinn.

Athugið að markmið og starfsemi félagsins verður að tengjast námi við Háskóla Íslands.

Sjá gjaldskrá RHÍ