ATHYGLI ATHYGLI!!
Fimmtudaginn 19. september erum við að fara í fyrstu vísindaferð haustsins. Leið okkar liggur í Hugsmiðjuna en það er veffyrirtæki sem hefur það að leiðarljósi að hafa vefi og snjallvefi aðgengilega.
Mæting verður í Hugsmiðjuna kl. 17.00 á Snorrabraut 56, gengið er inn að framan og svo upp á 2. hæð.
Léttar og góðar veitingar í boði.
Skráning hefst kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 13. September á heimasíðu Mímis.
Skráning fer fram í kommentum á HEIMASÍÐUNNI
Takmarkaður sætafjöldi, aðeins 20 sæti í boði!
Fyrstur kemur, fyrstur fær.