Nóg um að vera á föstudag hjá Padeia

Sæææælinú

Minni á skráningu í fræðaferð til Umboðsmanns barna á föstudaginn frá 12-13, skráning á rok3@hi.is. Til að nálgast frekari upplýsingar bendi ég á fyrri póst um efnið, hér að neðan ;o) Skráningu lýkur annað kvöld!

Um kvöldið er svo vísindaferð í SMFR (Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra, Reykjanesi), frá 17-19. SMFR er staðsett á Fjarðargöta 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfirði. Við fórum þangað í fyrra og það var mjöög spennandi og áhugavert. SMFR býður upp á létt nasl, og Padeia býður upp á bjór! Í þessa vísindaferð verður ekki hægt að taka vini með, en pláss er fyrir um 15 manns. Skráningu í vísó lýkur kl. 16.00 á miðvikudag.

Þar sem kommentakerfið á heimasíðunni liggur niðri, skráið þið ykkur með því að senda póst á rok3@hi.is og takið fram hvort þið ætlið í vísó eða fræðaferð, eða bara bæði ;o)

Hlakka til að sjá ykkur og heyra frá ykkur ;o)

Kveðja
Stjórnin

 

Fræðaferðir

Sæl öll

Eins og mörg ykkar vita stóð Padeia fyrir fræðaferð í Barnahús
síðastliðinn föstudag (6. nóv). Þegar við bókuðum ferðina, sögðum við
starfsfólkinu að það mætti búast við c.a. 10 manns, og skráning var í
samræmi við það, eða 9 manns.

Barnahús tekur ekki á móti hvaða hópum sem er en þau velja mjög vel þá sem
fá að koma í heimsókn. Til að hægt sé að taka á móti svona gestum og kynna
þeim starfið þarf að loka húsinu á meðan, og engin starfsemi getur verið í
gangi á meðan. Það þýði að til að taka á móti okkur varð að færa til öll
viðtöl og alla meðferðartíma sem áttu að vera í gangi.

Það fór hinsvegar svo að einungis 2 nemendur af þessum 9 mættu, og aðeins
2 afboðuðu sig til stjórnarinnar. Þetta er mjög slæmt, bæði fyrir
nemendafélagið og fyrir Barnahús, en ekki síst fyrir öll 15 börnin sem
biðu eftir viðtali!!! 15 börn!! Starfsmenn Barnahúss voru ekki sáttir við
að hliðra til allri starfsemi og undibúa komu okkar, þegar einungis 2
mæta!

Við eigum skráða fræðaferð í Umboðsmann barna næstkomandi föstudag (13.
nóv)kl. 12 og opnar skráning í það í dag (ef kommentakerfið er ennþá
bilað- sendið póst á rok3@hi.is). Umboðsmaður barna er staðsettur á
Laugarvegi 13, 2. hæð gengið inn frá Smiðjustíg. Þarna er kjörið tækifæri
fyrir okkur sem erum að mennta okkur í þessu fagi að kynnast starfi og
hlutverki umboðsmanns barna, og því hvet ég ykkur til að mæta, en pláss er
fyrir svona u.þ.b. 15 manns.
Ég vil taka fram skráning er BINDANDI! Ekki skrá þig ef þú ert ekki viss
um að mæta! Skráningu lýkur svo á þriðjudagskvöld og á miðvikudegi verður
metið, eftir fjölda skráðra hvort ferðin stendur eða ekki.

Eftir þessa leiðinlegu reynslu með Barnahús, hefur stjórn Padeia ákveðið
að áframhaldandi fræðaferðir fari eftir því hvernig mæting hjá umboðsmanni
barna verður. Ef það verður slök mæting mun Padeia ekki standa fyrir
frekari fræðaferðum, en ef mæting verður góð komum við til með að skoða
þetta eftir áramótin.

Kveðja
Stjórn Padeia

 

Vísó á morgun!!

Gleðigleðigleði!!

Það var verið að bjóða okkur 7 sæti í vísindaferð í Vodafone, í Skútuvogi 2, á morgun, föstudaginn 6. nóvember.
Mæting kl. 17.50!
Við erum að fara með slatta af öðrum félögum: íþrótta – og sálfræðinemar í HR, Hagfræðin í HÍ, félagsfræðinni, og 2. og 3. árs nemum í lögfræði í HÍ.

Og eftir vísó eru tilboð á Hverfisbarnum fyrir alla :o)

Þar sem kommentakerfið er bilað, megið þið sem viljið fara með bara senda mér tölvupóst á þetta mail(rok3@hi.is)!!

Vona að þið sjáið ykkur fært að mæta!

Kveðja
Rósalind

 

Fræðaferð

Sælinú!!

Núna á föstudaginn (6. nóv) eigum við bókað í fræðaferð í Barnahús kl. 10-11 (um morguninn ;o)) Pláss er fyrir ca 12 manns, og það þarf að skrá sig á heimsíðunni, ef fleiri en 12 bóka sig verður settur upp biðlisti svo þess vegna er nauðsynlegt að afboða sig, og setja símanúmer svo hægt sé að boða þann efsta á lista ef verða forföll.
Það eru allir velkomnir, en Padeia-meðlimir eru í forgangi! Skráning:
Nafn - Padeia/ekki Padeia - símanúmer

Barnahús er staðsett í Sólheimum 17, Reykjavík og þeir sem vilja mæta sjá sjálfir um að koma sér fram og til baka :o)

Heimsóknir á stofnanir á þessu sviði, sem snertir okkar fræði og nám beint, eru mjög gagnlegar og skemmtilegar. Við fræðumst um starfsemi þeirra og kynnumst starfsemi sem við gætum sjálf lagt fyrir okkur í framtíðinni ;o)

Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórnin

 

HALLOWEEN!!!!

Sææææææl og blessuð :o) Voruð þið ekki farin að sakna þess að heyra í
mér?!? :oþ

Næstkomandi föstudagskvöld - 30. október, stendur Padeia í samvinnu við
Félagsfræðina og Félagsráðgjöfina fyrir meeeeiriháttar Halloween-partýi!!

Það þarf varla að nefna það að auðvitað mæta allir í HALLOWEEN búningum -
en veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn ;o) Og að sjálfsögðu
viljum við að Padeia-meðlimur hreppi verðlaunin, svo við hvetjum alla til
að fá kreeeeisí hugmyndir ;o)

Forsala miða hefst á morgun, þriðjudag, og verður í Odda sem hér segir
Þriðjudagur (27.okt) kl. 13.00-15.00
Miðvikudagur(28.okt) kl. 13.00-15.00
Fimmtudagur (29. okt)kl. 13.00-15.00
(ef einhver af ykkur kennó-megin kemst ekki - talið þá við mig)

Í forsölu er miðinn á litar 500 krónur fyrir skírteinishafa, en 1500 fyrir
ekki-skríteinishafa. Einnig verður hægt að kaupa miða í dyrunum, en þá
kostar 1000 fyrir skírteinishafa og 2000 fyrir ekki-skírteinishafa.
(sem minnir mig á að fyrsta árið á eftir að nálgast skírteinin sín - hafið
samband við mig!)

Partýið fer fram í sal sjálfstæðisflokksins- Austurströnd 3
Seltjarnarnesi, og opnar húsið kl 20.00. Fólki er frjálst að mæta með
eigið áfengi, en einnig verður eitthvað í boði af áfengi - svo fyrstur
kemur fyrstur fær ;o)

(Til að geta haldið utan hverjir mæta frá okkur, megið þið sem ætlið að mæta endilega skrá ykkur í kommentakerfið - það er samt ekki bindandi bara svona fyrir okkur :oþ)

Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest ;o)
Kv.
Rósalind

 

Skírteini - Afslættir - Hraðlestrarnámskeið

Sææææl og blessuð!
(Afslættir út á Padeia-skírteinið - og ódýrara á hraðlestarnámskeið!!)

Nýju skírteinin fara í prentun eftir hádegi á morgun, svo enn er tækifæri
til að tryggja sér eintak. Það er margt sem fylgir þessum skírteinum, og
þá fyrst og fremst forgangur á allar Padeia-skemmtanir, frítt á minni
skemmtanir og ódýrara á stærri viðburði. Auk þess afslættir á eftirtöldum
stöðum;
* The Celtic Cross - Stór Egils úr krana á 600kr, Hvítt/Rautt glas 700kr,
3skot 1600kr
* 15% afsláttur í verslunum Adam og Evu
* 15% afsláttur af vinnu í Smur54, Bæjarhrauni HFJ (smyrðu bílinn ódýrara)
* 15% afsláttur af Pizzum hjá Eldsmiðjunni
* 10% afsláttur af námskeiðum og 5% afsláttur af vörum hjá Fjarðarskrap, HFJ
* 7% afsláttur hjá veitingarstöðum Saffran

Ofan á þetta eiga sér í gangi samningaviðræður við N1 um afslætti á
bensíni og bílatengdum vörum fyrir meðlimi Padeia, sem og
hraðlestrarnámskeið (meira um það neðar). Svo má alls ekki gleyma því að
Bruggsmiðjan Árskógssandi hefur styrkt okkur um glás af Kalda-bjór :o)

Ef þið viljið eignast skírteini og þar með alla þessa frábæru afslætti -
þá er bara að leggja 3.500 inn á reikninginn okkar 513-26-1684, kt.
521283-0419, og endilega láta senda sms í 847-6685, svo þið séuð örugglega
með (fyrir kl 14 á fim, til að fá skírteinin í þessari prentun).

Hraðlestrarnámskeið!
Hafið þið áhuga á því? Meðlimum Padeia stendur til boða að fá annað hvort
afslætti af þessum námskeiðum, eða jafnvel að haldið verði sér námskeið
fyrir okkur, og þá enn ódýrara… Endilega látið mig vita ef þið hafið
áhuga og ég kem þessu í gang :o)

Minni svo á októberfestpartý - sjá á heimasíðu!
Kveeeeðja á ykkur öll
Rósalind
Formaður Padeia

 

PARTÝ og Októberfest!! Gleðigleði

Hallóhalló…

Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir fer októberfest háskólans fram núna um næstu helgi! Ég hvet ykkur öll til að skella ykkur á það- enda dúndrandi stuð og skemmtilegheit :o) Endilega kynnið ykkur það nánar á www.oktober.is

Til að hita aðeins upp í okkur fyrir gleðina ætlum við að hafa fyrirPARTÝ á föstudagskvöldið! Gleðin byrjar kl 18.00 og um kl 21.30 kemur rúta og sækir liði og skultar okkur á októberfest.
Allir í uppeldis- og menntunarfræðinni eru velkomnir, það kostar ekkert fyrir Padeia-meðlimi, en þeir sem ekki eru í Padeia borga 500 kall…
Skráning fer fram í commentakerfinu á heimasíðunni(www.nemendafelog.hi.is/padeia), opnar núna á eftir og lýkur á miðnætti á miðvikudag. (Staðsetning kemur á fimmtudag!)Þar takið þið fram Nafn- Padeia/ekki-Padeia - símanúmer - rúta/ekki rúta

BJÓR, HVÍTVÍN & SNAKK í boði hússins á meðan birgðir endast ;o)

Við viljum endilega fá sem flesta - bæði Padeia og ekki-Padeia, líka til að ná að kynna okkur meira þar sem það eru margir sem við höfum ekki hitt ennþá ;o)

Nýju Padeia skírteinin verða afhent á föstudagskvöldið - ef þið komist ekki en viljið nálgast nýja skríteinið - og þar sem alla afslættina - hafið bara samband við Rósalind - rok3@hi.is.

Kveðja
Stjórnin

 

LOGI Í BEINNI - UPPLÝSINGAR

Sælinú!

Vildum bara senda ykkur upplýsingar um Loga í beinni! Enn eru örfá sæti laus - svo ef þið viljið koma með getið þið sent Rósalind e-mail á rok3@hi.is

Gert er ráð fyrir mætingu kl 19.30 og byrja á að gæða sér á PIZZUM og BJÓR, en upptökur byrja svo kl 20.00 og því er mikilvægt að mæta tímanlega. Mæting er á Laugarveg 176 (gamla sjónvarpshúsið), labbað er upp meðfram Red Chili og inn í protið til hægri, og þá eigið þið að sjá þetta :o) Ef einhver er í vandræðum er hægt að hringja í Rósalind í sima 847-6685

Munið svo eftir 500 kallinum fyrir vini og þá sem ekki eru í Padeia ;o)

Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát

Kv. Stjórnin

 

LOGI Í BEINNI - SKRÁNING!!!!

Hæhó kæru vinir - og takk æðislega fyrir síðast ;o) Þetta var
stórskemmtilegt nýnemadjamm - og verður gaman að sýna ykkur upptökuna
síðar ;o)

En þá er komið að næsta DJAMMI Padeia - sem verður n.k föstudag- 25.
september! Þá ætlum við að skella okkur í sjónvarpssal á Loga í beinni,
þar sem BOÐIÐ verður upp á PIZZUR og BJÓR!! Þess má líka geta að
mannfræðingar verða með okkur í salnum, og því endalaus gleði, en fátt er
skemmtilegra en fuuuuullt af háskólaliði á njóta þess að komast á djammið
;o)Nánari upplýsingar koma síðar en mæting er um 19.30.

Við eigum 30 sæti, og því ætlum við að leyfa ekki-padeia-meðlimum í
upp.mennt, og/eða vinum að fljóta með, ef pláss leyfir. Það kostar ekkert
fyrir þá sem eiga Padeia-skírteini, en aðrir borga einn lítinn 500 kall.
Padeia-meðlimir hafa forgang- á eftir þeim upp.mennt.nem sem ekki eru í
Padeia, svo koma vinir Padeia-meðlima og þar á eftir vinir
ekki-Padeia-meðlima… Ef einhver skilur hvað ég er að segja :oþ
Í kjölfarið af því vil ég benda á, að ennþá er hægt að kaupa
félagsskírteini með því að senda mér póst!

Skráning fer fram í commenta-kerfinu á heimasíðunni okkar
(nemendafelog.hi.is/padeia), við Loga í beinni færsluna, og opnar núna
eftir smástund og lýkur á miðnætti á miðvikudag!
Ef fleiri en 30 skrá sig, fer restin á biðlista, og því er mikilvægt að
allir láti vita ef þeir komast ekki- líka þó það sé bara rétt fyrir
mætingu!! Svo forföll tilkynnast í 847-6685!
Í skráningu skrifið þið nafn, hvort þið eruð í padeia eða ekki, símanúmer
og +1 ef þið viljið bjóða vini með, s.s.
Rósalind- Padeia- 847-6685 - +1

Hlakka til að sjá ykkur
Kv. Rósalind

 

ÓVISSUFERÐ Á MORGUN

LOKSINS er stóra stundin runnin upp :o)

Hittumst í Grasagarðinum (Fjölskyldugarðsmegin) í Laugardalnum kl. 18.02 á föstudaginn 18. september!

Hefð er orðin fyrir því að aðgreina árin með litum og biðjum við því alla
um að mæta í, eða með eitthvað í þeim lit sem tilheyrir þeirra ári.

1. ár = appelsínugulur
2. ár = rauður
3. ár = blár

Léttar veitingar og áfengi verður í boði - bæði bjór og hvítvín - á meðan birgðir endast :o)
Þeir sem vilja detta allsvakalega í það, er bent á að koma að auki með
sitt eigið áfengi.

Dagskráin hefst úti, og því bendum við fólki á að klæða sig eftir veðri.
Hægt er að geyma dót/skipta um föt/skipta um skó seinna um kvöldið ef fólk kýs.

Munið svo eftir góða skapinu og sjáum ykkur úber hress og kát ;o)

Stjórnin