Árshátíðarvikan!!!
By Helgi Rafn | March 17, 2010
Í dag er síðasti dagur til að borga fyrir árshátíðina nota bene!!!!
Matseðillinn lítur svona út:
Forréttur:
Laxarúlla með steinseljurótarmauki, silungahrognum og sýrðum rjóma.
Aðalréttur:
Lambahryggsvöðvi og skanki með rauðrófu-kartöflum, ætiþistlamauki og rauðvínssósu.
Eftirréttur:
Súkkulaði og jarðaberja samleikur.
Af sjálfsögðu er grænmetismatseðill einnig í boði og hann lítur svona út:
Forréttur:
Íslenskt Cesarsalat með skyrdressingu.
Aðalréttur:
Ætiþistilkeila með rauðrófukartöflum, ætiþistilmauki og rauðvínssósu.
Eftirréttur:
Súkkulaði og jarðaberja samleikur.
Í árshátíðarvikunni (í næstu viku) verður heljarinnar húllumhæ með okkar einstöku vinum úr Stigli. Svona er dagskráin:
Þriðjudagur 23.mars
Allir hittast á Miklatúni og spilaður verður FÓTBOLTI!!! (… eða stórfiskaleikur)
Miðvikudagur 24.mars
Danskennsla. Nokkrir af færustu samkvæmisdönsurum háskólans kenna ykkur réttu múvin í tæka tíð fyrir árshátíðina
Fimmtudagur 25.mars
Vídeokvöld. Stofa leigð annað hvort í Öskju eða VR-II og horft verður á einvherja sniðuga mynd í kósý stemningu.
Föstudagur 26.mars
Spila- & lankvöld - Hvarf skorar m.a. á Stigul í Mario Gocart. Actionary verður á staðnum o.s.frv.
Laugardagur 27.mars
kl.11: FOKKING LASER TAG!!!!!!!!! Hvarf vs. Stigull. Hver vinnur?????
kl.4-5: Fyrirpartý árshátíðarinnar, haldið heima hjá Svanní og Melkorku.
kl.7: Lagt af stað upp á Hótel Sögu via rútu.
kl.8: Borðhald hefst
kl.~9:30: Skemmtiatriði nýnema
Kl.~10:15: DDDDJJJJAAAAAAAMMMMMMMMMM!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Einnig vil ég minna á pókermótið sem verður núna á laugardaginn á Bjarna Fel. Skráning er í fullum gangi í Letigarði.
Topics: Almennt | No Comments »
árshatið
By Anna Maria | March 17, 2010
Allir að borga á árshátíðina í dag!!! svo þið missið ekki af lestinni! =)
Topics: Almennt | No Comments »
MIT frumkvöðlaráðstefnan!
By Helgi Rafn | March 16, 2010
MIT-frumkvöðlaráðstefnan verður haldin hér á landi 24-26.mars þar sem fókusinn er á "Conquering the Economic Crisis with Innovation, Entrepreneurship and Green Energy". http://www.mitgsw.org Kristín Vala vill endilega að áhugasamir nemendur úr HÍ fari á hana svo hún ætlar að styrkja hóp nemenda til að fara. Þetta er spennandi tækifæri til að kynnast áhugaverðum hugmyndum og nýju fólki! Ef þið hafið áhuga eða vitið um einhvern sem hefur áhuga látið mig þá vita sem fyrst![]()
Topics: Almennt | No Comments »
Pókermót Hvarfs
By Helgi Rafn | March 15, 2010
Núna á laugardaginn 20.mars fer fram pókermót Hvarfs á Bjarna Fel.
Að gefnu tilefni geta EINUNGIS meðlimir HVARFS tekið þátt og mun skráning hefjast í Letigarði á morgun (þriðjudag) kl.10:00.
Spilaður verður no limit Texas hold’em og verður buy-in 1000 krónur sléttar. Ekki verður hægt að kaupa sig aftur inn.
Loks verða fyrstu þrjú sætin verðlaunuð á eftirfarandi hátt:
1.sæti - 60% af þátttökugjaldi
2.sæti - 30% af þáttökugjaldi
3.sæti - 10% af þátttökugjaldi
Þ.e.a.s. Hvarf græðir ekki krónu á þessu móti svo allt er skv. lögum og reglum
Mótið hefst á slaginu 20:00 og ekki mínútu síðar. Hlakka til að sjá ykkur öll á Bjarna Fel!
Stjórnin
Topics: Almennt | No Comments »
Sumarstörf 2010!
By Anna Maria | March 8, 2010
Hef ég ákveðið að setja inn þær auglýsingar sem ég fæ um sumarstörf og mögulega mastersverkefni inn á flipa hér að ofan (og til hliðar ) sem heitir Sumarstörf 2010. Svo endilega verið dugleg að kíkja á það! ![]()
kv Anna
Topics: Almennt | No Comments »
Árshátíð Hvarfs og Stiguls OG Pókermót Hvarfs!!!!!
By Helgi Rafn | March 4, 2010
Jæja lömbin góð,
sameiginleg árshátíð Hvarfs (og Stiguls) verður haldin hátíðlfeg á Hótel Sögu laugardaginn 27. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar um tíma, miðaafhendingu og dagskrá í árshátíðarvikunni kemur síðar
Verð fyrir Hvarfgjarna er 5500 kr en fyrir óHvarfgjarna 6500 kr.
Miðasalan er hafin NÚNA á netinu og henni LÝKUR 18.MARS KL.16:00!!!!!!! (eftir tvær vikur).
Miðann skal greiða inn á reikning Hvarfs:
**Kt.** 521192-2169 **Reikningsnr.** 1175-26-012414 en óvæntur glaðningur fylgir miðanumEf þið viljið greiða með pening þá megiði það en þá skulið þið tilkynna okkur stjórninni það og láta Elku hafa blingið!
Nánari upplýsingar um matseðil koma síðar. Líka!!!!!
Pókermót Hvarfs verður haldið á Bjarna Fel laugardaginn 20.mars næstkomandi. Stay tuned fyrir updateAllt að gerast, over and out!
![]()
Topics: Almennt | No Comments »
Sumarstarf í boði á Raunó!!
By Anna Maria | March 2, 2010
Sumarstarf á Raunvísindastofnun
Til greina kemur að ráða sumarstúdent (einn eða tvo) til aðstoðar við rannsóknir meistaranema á efnafræðistofu Raunvísindastofnunar. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið eftirtöldum námskeiðum: Ólífrænni efnafræði 1 og 2, lífrænni efnafræði 1 og 2 ásamt efnagreiningartækni. Áhugi á vinnu við efnasmíðar er einnig mikilvægur.
Umsóknir sendist ekki seinna en 15. mars í tölvupósti til: ingvara@raunvis.hi.is
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendur mega eiga von á að vera boðaðir í viðtal.
Ingvar Helgi Árnason
Prófessor í ólífrænni efnafræði
Topics: Almennt | No Comments »
Blóð-söfnun!
By Anna Maria | March 2, 2010
Hæhæ
Í dag, þann 1. mars, hefst Blóðgjafamánuður Háskóla Íslands. Í þessum
mánuði er markmiðið að sem flestir nemendur HÍ gefi blóð, bæði nýir og
eldri blóðgjafar. Þeir sem gefa blóð í mars skrá sig á sérstaka lista í
Blóðbankanum og hvaða nemendafélagi eða námsbraut þeir tilheyra. Ekki
skiptir máli hvort þeir séu að mæta í sýnatöku fyrir fyrstu gjöf eða í
fulla blóðgjöf. Einnig mun Blóðbankabíllinn mæta tvo daga í mars, þann 3.
á bílastæðið við Háskólabíó, og þann 15. á bílastæðið við Odda. Í lokin
verður svo talið saman hvaða námsbraut gaf hlutfallslega mest blóð og
hlýtur nemendafélag þeirrar námsbrautar farandbikar Blóðgjafamánaðarins að
launum. Bikarinn verður afhentur í lokahófi Blóðgjafamánaðarins, nánar
auglýst síðar.
í fyrra munaði minnir mig einhverri einni blóðgjöf að við hefðum unnið læknanemana! svo ALLIR að taka höndum saman til að rústa þeim í eitt skipti fyrir öll, ooogg auðvitað til að hjálpa til og gefa blóð!
Fyrir þá sem hafa aldrei gefið blóð og eru mögulega hræddir við það þá veðrur einungis tekið sýni, þar sem athugað er hvort þið séuð hæf um að gefa blóð. Þetta gefur okkur einnig stig! það þarf bara að skrá nafn og frá hvaða nemendafélagi blóðið kemur
Vona að sem flestir leggi sitt að mörkum til að hjálpa blóðbankanum ![]()
Topics: Almennt | No Comments »
Vísindaferð í GRÓCO
By AsdisArna | March 1, 2010
Gírum okkur upp eftir helgina fyrir næsta föstudag því förinni er heitið til GRÓCO. 25 manns komast með og fer rútan STUNDVÍSLEGA frá VR klukkan 16.20 og ekkert rugl eins og seinast takk fyrir pent.
Listinn verður hengdur upp í LETIGARÐI kl. 10:00 á þriðjudagsmorguninn.
Verð: 600 kr fyrir Hvarfara og 800 kr fyrir aðra.
FÓLK VERÐUR AÐ VERA BÚIÐ AÐ BORGA FYRIR KL: 22:00 Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ!!! inn á rknr. 1175-26-012414 og kt. 521192-2169.
Þið þekkið þetta föstudagar eru frábærir.
Vonandi mæta sem flestir
Kær kveðja
Vísindaferðaráð 0910
Topics: Almennt | No Comments »
Smá tilkynning
By Helgi Rafn | February 22, 2010
Sæl veriði dúllurnar mínar.
Ég vildi bara minna ykkur á hin djúsí tilboð sem félagsmenn Hvarfs geta notfært sér,
- Subway: 10% afsláttur af matseðli gegn framvísun skírteinis
- Serrano: 13% afsláttur af matseðli gegn framvísun skírteinis
- Red Chili: 15% afsláttur af matseðli gegn framvísun skírteinis
- Adam og Eva: 15% af öllum vörum gegn framvísun skírteinis
- Wilsons: 15% afslátt af tilboðum gegn framvísun skírteinis. Gildir ekki af 2/1, hádegistilboðum og geðveikistilboðum.
- N1: 6kr. afsláttur af dæluverði (2 kr. í formi safnkortspunkta), 15% afslátt af smur- og
hjólbarðaþjónustu og 15% afslátt af viðgerðum, þjónustu og fleiru. Til að fá þennan afslátt er hægt að skrá debit- eða kreditkort sitt með því að smella á auglýsingu N1 hérna að ofan.
Enjoy, kiðlingar mínir ![]()
Topics: Almennt | No Comments »
VÍSINDAFERÐ Í MATÍS !!!
By AsdisArna | February 21, 2010
Krakkar mínir komið þið sæl!!!
Það þýðir víst lítið að slá slöku við því næsta föstudag er komið að heimsókn í MATÍS.
30 manns komast með og fer rútan STUNDVÍSLEGA frá VR klukkan 16.15.
Listinn verður hengdur upp í LETIGARÐI kl. 10:00 á þriðjudagsmorguninn.
ATH!!! SKRÁNING HÉR GILDIR EKKI, BARA LISTINN í LETIGARÐI!!!
Verð: 600 kr fyrir Hvarfara og 800 kr fyrir aðra.
FÓLK VERÐUR AÐ VERA BÚIÐ AÐ BORGA FYRIR KL: 22:00 Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ!!! inn á rknr. 1175-26-012414 og kt. 521192-2169.
Þið þekkið þetta föstudagar eru frábærir.
Vonandi mæta sem flestir
Kær kveðja
Vísindaferðaráð 0910
P.S. Það er mjög mikilvægt að mæta tímanlega þar sem umferðin á föstudögum rétt fyrir fimm er eins og hún er.
Topics: Almennt | No Comments »
Laugardagurinn
By Anna Maria | February 19, 2010
Minni áhugasama á háskóladaginn á laugardaginn ! efnafræðinemar verða með bás á neðri hæð í háskólatorgi!
Einnig vil ég nýta tækifærið og bjóða öllum á sýningu hjá Sprengjugenginu sem fer fram í háskólabíó kl 12 og 14 á laugardag! venjan og stefnan er að troðfylla salinn svo endilega mætið tímanlega og takið sem flesta með sem hafa áhuga á sprengingum og töfrabrögðum!! …hver hefur ekki gaman af því??
Sjáumst!!
Topics: Almennt | No Comments »
myndir
By Anna Maria | February 16, 2010
Myndir úr búningapartyi eru komnar á vefinn!! Hér !
Takk fyrir frábært kvöld!!
Ps. fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna efnafræðina á háskóladögunum hafa samband við : önnu, helga, elku eða adam!! munum vera með bás á háskoladögum þar sem sýndar verða einhverjar brellur ![]()
Topics: Almennt | No Comments »
Vísindaferð Í Actavis
By AsdisArna | February 14, 2010
Jæja nú er komið að heimsókn í Actavis.
Skráning fer fram á lista sem verður hengdur upp í LETIGARÐI kl. 10:00 á þriðjudagsmorguninn.
Rúta fer frá VR kl. 16.15 og svo niður í bæ eftir ferðina.
MÆTA TÍMANLEGA - MJÖG MIKILVÆGT
Staðsetning: Dalshraun 1 Hafnarfirði. Inngangur A á 5. hæð.
Verð: 600 kr fyrir Hvarfara og 800 kr fyrir aðra.
FÓLK VERÐUR AÐ VERA BÚIÐ AÐ BORGA FYRIR KL: 22:00 Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ!!! inn á rknr. 1175-26-012414 og kt. 521192-2169.
Þið þekkið þetta föstudagar eru frábærir.
Vonandi mæta sem flestir
Kær kveðja
Vísindaferðaráð 0910
P.S. Það er mjög mikilvægt að mæta tímanlega þar sem umferðin á föstudögum rétt fyrir fimm er eins og hún er.
Topics: Almennt | No Comments »
Búningaparty Hvarfs!
By Anna Maria | February 9, 2010
Þá er loksins komið að hinu árlega búningapartyi Hvarfs!
Að þessu sinni verður það haldið í gamla Klúbbnum, Stórhöfða 7. Gamanið hefst kl 21:00 á laugardaginn og verður nóg af fljótandi veigum, eins og svo oft áður
Þar sem þetta er svona langt í burtu verður rúta niður í bæ að fjörinu loknu, og greiða þarf 500 kr inná reikning Hvarfs fyrir hádegi á föstud! Verður VIP gestalisti við dyrnar ! ;p
Rknr. 1175-26-012414 og kt. 521192-2169.
Auðvitað verður svo keppt um bestasta og frumlegasta búninginn!!
Sjáumst vonandi sem flest ! ![]()
Topics: Almennt | 1 Comment »
« Previous Entries






