Kæru homoar,
Föstudaginn 26. febrúar förum við í heimsókn í höfuðstöðvar UNIFEM. Mæting er kl 17:30 að Laugavegi 42, 2 hæð. Við verðum hjá þeim til klukkan 19:00 en eftir það er förinni heitið á Hressó/Bjarna Fel og að vanda verða tilboðin góðu í gangi þar.
Skráningin er hafin á homo@hi.is og lýkur á hádegi á fimmtudag. Að venju er frítt fyrir meðlimi Homo og kostar 500 kr fyrir gesti, og elsku börn endilega tilkynna forföll á homo@hi.is
Allir velkomnir!
ást, friður og candy floss
Stjórnin
-Því við förum í vísó með Harris
Filed under: Uncategorized | Comment (0)
Elskulegir Homoar
Takið fram keiluskóna og dustið af jakkanum því Homo ætlar að bjóða ykkur í keilu!
Mæting er í Keiluhöllina í Öskjuhliðinni á föstudaginn, 19. febrúar, kl. 18:30.
Þegar leiknum verður lokið kl. 20 verður farið fylktu liði með strætó á Bjarna Fel þar sem við stefnum á hafa keppni í BUZZ eða jafnvel Singstar og verðum með okkar venjulegu tilboð þar.
Gestir eru velkomnir með í keilu en það kostar 500 kr fyrir þá.
Skráning hefst núna og lýkur á hádegi á föstudag, sendið póst á homo@hi.is
Stuðkveðjur,
Stjórnin
- Því við tökum vorið í nefið með Gupta og Ferguson
Filed under: Uncategorized | Comment (0)
Elsku Homolingar,
Okkur stjórnarmeðlimum barst boð um mjög áhugaverða fyrirlestraröð á vegum Mannfræðifélags Íslands. Fyrirlestrarnir verða annan þriðjudag í hverjum mánuði í Reykjavíkurakademíunni, JL-Húsinu við Hringbraut 121.
Á morgun, þriðjudaginn 9. febrúar, verður engin annar en Sigurjón með fyrirlestur um húmor, Hið íslenzka reðasafn og safnamenningu á Íslandi. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við alla til að mæta!
Bestu kveðjur,
Stjórnin
- Því Sigurjón er fínn
Filed under: Uncategorized | Comment (0)
Elskulegir homolingar nær og fjær,
Þá er komið að næstu vísindaferð og í þetta sinn ætlum við að heimsækja góða fólkið hjá Landsvirkjun.
Mæting er kl. 17 að Háaleitisbraut 68. Skráning er á homo@hi.is og kostar ekkert fyrir Homolinga, 500 kr fyrir gesti.
Að venju höldum við svo á Hressó þar sem Homotilboðin góðu verða við gildi. Við minnum fólk á að taka nemendaskírteinin með til að fá tilboðin.
Að venju eru tilboðin
Stór bjór 390 kr
Skot 390 kr (eplasnafs/hot n sweet)
Einfaldur í gos 790
Einfaldur í orkudrykk 890
Kjúklingasalat og gos/hvítvínsglas 1190
Ostborgari m frönskum og gos/bjór 990
Hlökkum til að sjá ykkur í banastuði!
Ást, friður og væmin kveðja
Stjórnin
- Því við drekkum kaffi með Jónínu Einars
Filed under: Uncategorized | Comment (0)
Jæja kæru Homoar
Þá er búið að ákveða skemmtileg plön fyrir föstudaginn. Að þessu sinni ætlum við að fjölmenna á Hressó og verður skemmtilegt og spennandi kráargáta (pub quiz) a la Homo haldið.
Við verðum staðsett á bak við rauða tjaldið og hefst fjörið kl 21:00. Engin skráning er á þennan viðburð en þeir sem vilja vera með í kráargátuni verið mætt tímanlega
Einföld útgáfa:
Hressó, föstudaginn 22 janúar kl 21:00, á bak við rauða tjaldið.
Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórnin
- Því við förum í kráargátu með Jónínu Einarsdóttur
Filed under: Uncategorized | Comment (0)
Elskulegir homolingar nær og fjær,
Þá er seinni helmingur skólaársins hafinn og var fyrsta vísindaferðin seinasta föstudag. Ölgerð Egils Skallagrímssonar bauð okkur í heimsókn og skemmtum við okkur kongunglega þar. Fjörinu er samt ekki lokið því önnin er stútfull af alls kyns skemmtilegum uppákomum, vísindaferðum og svo auðvitað aðalmálinu ÁRSHÁTÍÐ 2010.
Homo heldur fjörinu áfram föstudaginn 22 janúar og viljum við því benda ykkur á að taka þann dag frá. Meiri upplýsingar koma í vikunni.
Verið nú dugleg að læra svo þið komist með í fjörið
Ást, friður og gleði,
Stjórnin
- Því við klárum að læra á virkum dögum með Kristínu Loftsdóttur
Filed under: Uncategorized | Comment (0)
Stjórn Homo sendir ykkur bestu nýárskveðjur og vonar að jólin hafa verið skemmtileg.
Framundan er nýtt ár og allt er mögulegt fyrir ykkur kæru homoar
Mætum með bros í háskólann, á djammið og í lífið sjálft
Kveðja
Stjórn homo
-Því við leikum á fiðlu með Raymond Firth
Filed under: Almennt | Comment (0)
Elskulegir homolingar nær og fjær
Þá er komið að því. Próflokadjammið í ár.
Að þessu sinni fögnum við próflokum á neðri hæð Priksins föstudaginn 18 desember 2009. Eitthvað magn verður af fríum bjór og er því um að gera að mæta snemma. Fjörið (og bjórinn) hefst kl 21:00 og þegar fríi bjórinn klárast þarf ei að örvænta því góð tilboð taka við á barnum (bjór og skot á 350 kr).
Mögnuð dagskrá kvöldsins hljómar svona:
* Pubquiz verður með almennum spurningum í þetta skiptið.
* Litlu homojólin: Eftir pubquiz-ið ætlum við að hafa smá kósý jólastemningu og skiptast á pökkum. Allir að koma með litla innpakkaða gjöf (helst fyrir bæði kyn og má ekki kosta meira en 500 kr).
* Hver veit nema við skellum okkur svo í einn eða tvo drykkjuleiki.
Að venju er frítt fyrir meðlimi Homo en 500 kr fyrir gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur og gangi öllum sem best með síðustu ritgerðir, verkefni og próf
ást, friður og próflokakveðja
Stjórnin
- Því við fögnum próflokum með Marcel Mauss
Filed under: Uncategorized | Comments (3)
Elsku homolingar
Þá er komið að síðustu vísindaferðinni á þessari önn. Í þetta sinn ætlum við að heimsækja Nova staðsett í Lágmúla 9. Mæting er stundvíslega kl 18:00 og stendur fjörið yfir til 20:00. Eftir Nova förum við á Hressó að vanda þar sem Homo tilboðin góðu verða í gildi, einnig verður svo æsispennandi Pup Quiz keppni sem verður að sjálfsögðu með mannfræðilegu ívafi svona í tilefni af prófunum sem nálgast.
Skráning verður í gegnum homo@hi.is og endilega þeir sem skrá sig og komast ekki tilkynna forföll
Þeir sem vilja taka gesti takið það fram í skráningarpóstinum og munið það kostar 500 kr fyrir stykkið
kv Stjórnin
- Því við elskum símafyrirtæki eins og Eriksen
Filed under: Uncategorized | Comment (1)
Elsku homolingar
Við stjórnarmeðlimir viljum þakka ykkur fyrir frábært Hrekkjavökupartý á föstudaginn. Homoar fjölmenntu í fjörið og allir í frábærum búningum…!
Næsta mál á dagskrá er vísindaferð til Vinstri Grænna á föstudaginn. Mæting klukkan 17:00 stundvíslega á Suðurgötu 3 og verður síðan haldið á Hressó að venju þar sem hin góðu homotilboð verða í boði.
Skráning fer að sjálfsögðu fram á homo@hi.is og viljum við stjórnarmeðlimir ítreka að þeir sem skrá sig í vísó en komast svo ekki endilega sendið póst á homo@hi.is og látið vita svo við þurfum ekki að eyða tíma í að bíða eftir fólki sem mætir svo ekki.
Ást, friður og hamingja,
Stjórnin
- Því við kynnum okkur stjórnmálin með Geertz
Filed under: Uncategorized | Comment (1)